Jæja hérna kemur bloggið
sem fólk hefur beðið brjálað yfir (Bergur).
Janúar beibí:
Ég byrjaði semsagt árið á að deyja.. jámm var í áramótapartýi og
svona um 2 dó Erla bara pff.
Svo var ég bara að vinna á leikskólanum og Reykjadal á helgum..
rosa fínt en svo 10. þá var keyrt á hana Bertu mína, litla gullið
mitt. Hún er núna litli engillinn minn og passar mig..
Febrúar beibí:
Offsalega plein mánuður bara.. vinna út í eitt og lítið líf..
gerðist ekkert merkilegt sem ég man nema að Katrín varð
tvítug..
Mars Beibí:
Svipað og með febrúar.. gerðist ekki mikið.. nema að ég og Dagbjört
ákváðum að hætta saman.
Sigurást&Ármann eignuðust stelpu, Söru Maríu, hún er sætust í
heimi alveg einstaklega fallegt barn og ég dýrka hana svo
mikið..
Ég sagði upp í vinnunni því ég ætlaði aftur í dalinn í
sumar.
Svo í lok mánaðarins fluttum við á
Álftanesið heim til pabba hennar Dagbjartar því við vorum að leigja
hjá hálvitum og vorum ekki að meika það.
Apríl beibí:
Þá bjuggum við á Álftanesinu og ég þurfti að keyra í vinnuna.. það
var ekki sport.
Ása og Þór keyptu andarungann.
Ég kláraði mánuðinn í vinnunni og ég sakna hennar ennþá og litlu
krúttanna þar.. og auðvitað Hrannar líka.. en ég á hana nú
hehe
Maí beibí:
Ég og Dagbjört Fórum til costa del sol.. annað skiptið mitt sem ég
fer til útlanda.. Ég var hrædd alveg ógeðslega og það bitnaði
auðvitað allt á sætisfélaganum mínum henni Dagbjörtu.. Við vorum
1-18 þarna úti og þetta var alveg ógeðslega gaman.. þótt það var
erfitt að vera frá öllum hinum svona lengi. Við fórum í risa
rússíbana og ég andaðist næstum úr hræðslu, en lifði og var svo
stolt og alveg lifði á þessu í langan tíma.
Svo byrjaði ég strax í Reykjadal þegar ég kom heim og á andaunganum
svona aðeins með.
Júní beibí:
Var að vinna bara og gera fullt skemmtilegt og fullt af
vinnupartýum í vaktarfríum. Lenti á svo góðri vakt með svo fínu
fólki
Júlí beibí:
Ólafsvík city á færeyskadaga fyrstu helgina. Skelltum við okkur
nokkrar úr Júnitinu Ég átti síðan afmæli á laugardeginum minnir mig
og við héldum að sjálfsögðu upp á það með varðeld, grilli og Bjór.
Og Ingibjörg lét e-a hljómsveit syngja afmælissönginn handa mér
hehe klikkað töff. Þetta var nottla bara klikkuð ferð, þrátt fyrir
að sófasettunu hennar Halldóru var stolið ásamt grillvökvanum okkar
og einni kleinu hehe.. Við lærðum línudans hehe og fórum í sund á
Grundarfyrði það var spes.
Ágúst beibí:
Reykjadalur kláraðist, það var lokaball og lokapartý og svo
gayprideball.. þar sem stelpan dansaði uppá sviði hjá Páli Óskari
eins og árið 2004 hehe..
Ég byrjaði svo á fullu á andarunganum að vinna og flutti bara
þangað.. var sko búin að vera hálf heimilislaus. Menningarnótt var
líka klikkað djamm með Hemma..
September október og
nóvember beibí:
Vinna og tók 3 vaktir í Reykjadal. Endalausir Djamm mánuðir hjá mér
og Hemma.. og stoppuðum við oft á bekk á Austurvelli til að plana
framtíðina.. erum sko alveg búin að plana hana.. Sigurást, Ármann
og Sara fluttu í bæinn.. það gladdi mig og ég hékk þar endalaust
hehe
Desember beibí:
Ég hugsaði rosalega mikið í þessum mánuði hehe.. og sá að lífið
mitt var gjörsamlega staðnað.. þannig ég ákvað að gera e-ð í því.
Og ákvað að fara í FÁ og reyna að gera e-ð almennilegt..
Jólin komu og eru ekki farin reyndar. Voru rosa fín. Hemmi fór til
köben fyrir áramót sem gerði það að verkum að ég vissi ekkert hvað
ég ætti að gera, en það bjargaðist og voru þetta bara great
áramót..
Það gerðist margt fleira á
þessu ári.. skemmtilegt og leiðinlegt.. ég kynntist fullt af
frábæru fólki og öðru ekki svo frábæru.. fólk kom og fór úr lífi
mínu.. og ég sakna engra af þeim.. nema nottla Bertu en hún var
ekki fólk..
Skólinn byrjar á mánudag..
nenni því takmarkað en þetta verður fínt..
Hemmi kemur heim á
sunnudagsnóttina og ég þarf að redda mér fríi til að sækja hann..
eins gott að hann hafi keypt e-ð sniðugt handa Erlu hans Hemma síns
hahaha.Og svo ætlum við að kaupa ljóskort áður en við verðum aftur
glær..
ógeðslega góða skemmtun á Stykkó city stelpur.. vildi að ég kæmist
með en vinna vinna vinna.. og muniði ýmó 2007
Í jesú nafni fátækur maður